TAKK FYRIR STYRKINN DHL

Heimasíða fyrirtækisins er DHL.IS

Heimasíða fyrirtækisins er DHL.IS
TAKK FYRIR MIG


Ég hef unnið þetta mót fjórum sinnum, árin 2006, 2007, 2009 og 2010. Mótið var ekki haldið árið 2008.
Um að gera að fjölmenna í TBR um helgina og styðja íslenska þátttakendur á mótinu.

Tékkneska mótið var haldið í Brno, sem er fín borg og gaman og þægilegt að vera í. Það er miklu betra og skemmtilegra að vera í Brno en t.d. í Byalistok í Rússlandi eða krummaskuði í Póllandi. Keppnisaðstæður voru líka góðar, mótið var haldið í stórri, flottri nýlegri höll og mótshaldarar stóðu sig mjög vel í öllu sem viðkom mótinu. Það er ekki alltaf sjálfgefið, þannig að það er alltaf svo gaman að fara á mót þar sem mótshaldarar eru að standa sig vel í vinnunni sinni.
Ég byrjaði á því að vinna Agata Swist frá Póllandi 21:10, 21:9. Hún hafði unnið sig í gegnum qualifying deginum áður. Næsti leikur var við Sarah Milne frá Englandi. Ég skoðaði aðeins úrslitin hennar á síðustu mótum en ég hef í raun aldrei séð hana áður, en hún var með mjög góð úrslit á móti góðum stelpum. Þannig að ég vissi að ég yrði að spila mjög vel til að vinna hana. Huang grandskoðaði leikinn hennar í umferðinni á undan, tók hann líka upp og mætti með fullkomið leikplan fyrir mig. Ég mætti ákveðin til leiks, ætlaði mér að komast í 8.liða úrslit og fá 2200 stig og það tókst. Leikplanið hans Huang virkaði ótrúlega vel, ég eiginlega rústaði leiknum á blaði, 21:10, 21:12, en leikurinn var þó erfiðari en tölurnar sýna. Mjög sátt við þennan árangur fyrsta keppnisdaginn og hlakkaði til að spila við malasíska frakkann Sashina V. Waran. Hún var síðan mjög hröð og spilaði mjög vel, sem endaði í 21:9, 21:12 fyrir hana. Ég komst einhvernveginn ekki alveg inn í leikinn. Þrátt fyrir að finnast erfitt að tapa og þurfa minn tíma til að jafna mig (svona sirka nokkra tíma) þá er ég í raun sátt við stigin sem ég fékk og stefni á að komast lengra og fá fleiri stig í næstu mótum.
Næsta mót er í Almere í Hollandi frá 11-16 október. Almere er í um 25 mínútna lestarferð frá Amsterdam og ég hef nokkrum sinnum keppt á þessu móti og í þessari höll.
Mótaskráin er
komin og hana er hægt að sjá hér:
Við Steini komum til Guatemala um miðjan dag á mánudeginum 12. september. Við fengum ekki töskurnar okkar á færibandinu, þær gleymdust í Bandaríkjunum og það var enginn að ná í okkur þegar að við komum út. Við ráfuðum um í kringum flugstöðina og ekkert gerðist í um klukkutíma. Þegar ég kom heim las ég þetta á netinu:
„A number of travelers have experienced armed robberies after just having arrived on international flights. In the most common scenario, tourists who land at the airport are held up by armed men. Typically, the assailants steal money, passports, and luggage“.
Sem betur fer gerðist þetta þó ekki, en það er samt smá sjokk eftir á að sjá að þetta er nokkuð algengt. Að lokum kom rúta frá hótelinu og sótti okkur. Við komumst heil á húfi upp á hótel, vorum svöng og þreytt eftir langt ferðalag og ákváðum að rölta út í súpermarkað og kaupa okkur í gogginn. Það reyndist langt og óþægilegt labb. Svo mikið var starað á okkur að Steini bað mig um að setja upp hettuna og reyna að fela veskið mitt sem var reyrað utan um mig. Fyrir utan að það er stranglega bannað að fara út af hótelinu í eitthvað rölt (en það vissum við ekki) þá er það víst líka algjört “no no” að vera með eitthvað á sér í þokkabót (veski, úr, skartgripi, eitthvað verðmæti). Við komumst inn í súpermarkað, en á leiðinni upp á hótel aftur kom hellidemba þannig að sem betur fer fengum við okkur leigubíl og lentum á mjög almennilegum manni sem keyrði okkur beint upp á hótel. Það er víst ekki algengt að sleppa svona vel…
„Guatemala has one of the highest violent crime rates in Latin America. Violent crime is a serious concern due to endemic poverty, an abundance of weapons, a legacy of societal violence, and dysfunctional law enforcement and judicial systems. In the first seven months of 2011, approximately 42 murders a week were reported in Guatemala City alone.“
…og við vorum á röltinu í Guatemala city… la..la…laaa….
„The number of violent crimes reported by U.S. citizens and other foreigners has remained high and incidents have included assault, theft, armed robbery, carjacking, rape, kidnapping, and murder, even in areas once considered safe. Do not resist if you are being robbed. Victims have been killed when they resisted attack or refused to give up their money or other valuables.“
Okei. Þetta er nærri-dauða-reynslu sjokk eftir-á. Þegar við komum upp á hótel beið okkar þar badmintonstrákur sem ég þekki. Hann sagði okkur að við mættum alls alls alls ekki fara aftur út af hótelinu. Mömmu eins badmintonstráksins frá Guatemala hefur víst verið rænt tvisvar sinnum og mannræningjarnir heimtað lausnargjald. Þetta las ég síðan þegar að ég kom heim:
„In Guatemala city there have been "express" kidnappings in recent years, in which kidnappers demand a relatively small ransom that they believe can be quickly gathered. U.S. citizens, including young children, have been kidnapped. Some kidnapping gangs are known to kill their victims whether or not the ransom is paid.“
Ef ég hefði vitað þetta, þá hefði ég aldrei skráð mig í mót
í Guatemala city. Það er eins gott
að kynna sér aðeins betur þessi lönd sem maður er að fara að keppa í áður en maður
fer. Ég fann bara fallegar myndir af Guatemala á netinu og var búin að ímynda mér algjörar vellystingar !
Ég fékk eina æfingu í höllinni á þriðjudeginum 13. september, en byrjaði að keppa á miðvikudeginum. Höllin var hrikaleg, lágt til lofts, skrýtin ljós, spilað var á máluðum baðherbergisflísum, svakalega heitt og rakt inni í höllinni, mjög stutt á milli þessarra þriggja valla sem voru þarna, boltarnir allt allt alltof hraðir og allt skítugt. Ég ætla ekki einu sinni að fara út í hvernig ástandið á klósettinu var.
Ég vann fyrsta leikinn minn (í 64.liða) við stelpu frá Slóveníu sem er á svipuðum stað og ég á heimslistanum og komst líka inn á Ólympíuleikana 2008. Ég vann nokkuð létt, 21:5, 21:14. Hún eiginlega gat bara ekki spilað þarna, á meðan að ég spilaði alveg ágætlega. En í næsta leik daginn eftir (32.liða) gat ég einhvernveginn ekki spilað. Ég spilaði við stelpu frá Austurríki sem ég hef alltaf unnið í tveimur lotum. Hún spilaði mjög vel á meðan að ég var ekki alveg að finna mín högg og leikhraða. Eftir að ég tapaði á fimmtudeginum breyttum við fluginu til Boston og fórum strax morguninn eftir. Við vörðum þrem yndislegum dögum í Boston, þar sem ég gat æft þolið og lyft á hótelinu.
Ég er svo fegin að við komumst heil á húfi heim til Íslands
aftur.
Það hefur einhver vakað yfir okkur í þessari ferð.
Næsta mót er í borginn Brno í Tékklandi. Ég fór þangað síðast árið 2009 og líkaði vel. Ég vann þetta mót árið 2007, en þá var mótið á öðrum stað í Tékklandi.
Mótaskráin er komin og ég fæ 7. röðun inn í mótið:
http://tournamentsoftware.com/sport/draw.aspx?id=BC3CDFFD-0F63-4F24-96DD-B90372F923C1&draw=4
Ég æfi tvisvar á dag allan ársins hring," segir Ragna Björg, sem þessa dagana keppir að því að komast á Ólympíuleikana í London 2012. "Og þá er algjörlega nauðsynlegt að hugsa vel um heilsuna og hvað maður lætur ofan í sig.
Hversu stórt hlutverk spila fæðubótaefni í þinni þjálfun? "Þau spila mjög stórt hlutverk. Þau gera það að verkum að ég næ hámarksþjálfun út úr hverri æfingu og gefa mér aukna orku til að geta æft eins mikið og ég geri."
Hvers vegna notar þú NOW-vörurnar?
"Ég verð að gera strangar kröfur til þess sem ég neyti svo að árangurinn skili sér, enda stefni ég hátt. Því leitast ég við að nota hrein fæðubótarefni, sem eru í senn án sætuefna á borð við aspartam, litarefna, ódýrra uppfylliefna og rotvarnar- og bragðefna. Það er einmitt þess vegna sem ég vel NOW umfram önnur vörumerki í þessum bransa. Virknin er einstök og þau hjálpa mér að ná árangri," segir Ragna.
Ragna segist hafa tekið fæðubótarefnin í átta ár og hún sé ekki í vafa um að þau hafi hjálpað henni mikið við að ná árangri og
viðhalda góðri heilsu. "Oft er maður dauðþreyttur eftir fyrri æfinguna en þá blanda ég mér prótín- og kolvetnablöndu sem er blanda af Dextrosa og Carbo Gain og er þá alveg tilbúin í slaginn á seinni æfingunni og ekkert þreytt daginn eftir. Ég tek svo inn Eve fjölvítamínblöndu, Magnesíum citrate, sem hjálpar mér að ná slökun eftir mikið álag og kemur í veg fyrir harðsperrur. Acidophilous góðgerlablanda og D-vítamín eru allt
af til í skápnum mínum sem og omega-3 olíur sem hjálpa mér við að halda einbeitingu sem skiptir mig gríðarlega miklu máli," segir Ragna.
"Ég er ekki í neinum vafa um að góð og hrein fæðubótarefni eins og frá NOW geta aðstoðað mann við að ná árangri og viðhalda heilbrigði. Ég spái mikið í hvað ég læt ofan í mig og hef vanið mig á að neyta lífrænnar fæðu í meiri mæli en áður því ég vil
takmarka magn aukaefna sem gætu mögulega haft áhrif á heilsu mína og líðan og þess vegna henta NOW-fæðubótarefnin mér einstaklega vel. Það vita allir íþróttamenn sem vilja ná árangri að það skiptir öllu að vera í toppformi bæði líkamlega og andlega til að ná langt. NOW hefur gríðarlega stranga gæðastaðla og leitast við að nota hráefni sem eru ekki genabreytt og kemísk og velur lífræn hráefni þegar það er möguleiki.